Passíusálmur: 16. sálmur
Ekki hefur tekist að finna hvaða sálmur það er sem þessi tilvísun Hallgríms á við um þar sem enginn sálmur með þessu heiti finnst í sálmabókum eða Gröllurum. Aðrir lagboðar við Passíusálma sem eru með sömu hrynmynd, 8 = 7 6 7 6 6 7 7 6, eru „Gæsku Guðs vér prísum“ og „Konung Davíð sem kenndi“.
Í efnisskrá Sálmasöngsbókar 1936 er við 16. Passíusálm vísað á lag nr. 109 með lagboðanum „Konung Davíð sem kenndi“, en það er allt annað lag en það sem bar þennan lagboða í Hólabókum og Gröllurum og sem Hallgrímur vísar á við 25. og 33. Passíusálm. Þetta lag er mjög breytt gerð af þýska laginu „Aus meinem Herzen Grunde“ og er mikið sungið í íslensku kirkjunni nú á dögum. Í Sálmabók 1972 er í sálmi nr. 313 (13., 14. og 15. vers 16. Passíusálms) vísað í þennan lagboða. Í Sálmabók 1997 er við þennan sálm skráð útjöfnuð gerð af laginu sem upprunalega bar lagboðann „Konung Davíð sem kenndi“ (lagboði 25. og 33. Passíusálms, sjá nánar í umfjöllun um þann lagboða).
Þær laggerðir þjóðlaganna sem ég hef undir höndum og sungnar voru við þennan sálm eru greinileg afbrigði af lagboðanum „Gæsku Guðs vér prísum“ (lagboði 7. Passíusálms, sjá nánar í umfjöllun um þann lagboða). Í Íslenzk þjóðlög (s. 738) gefur Bjarni Þorsteinsson upp við 16. Passíusálm lagboðann „Konung Davíð sem kenndi“. Laggerð hans er greinilega komin af þeim lagboða.

Við niðurskrift nótnanna var stuðst við söng Sólrúnar Helgu Guðjónsdóttur (f. 1899) í Króksfjarðarnesi. Upptökuna gerði Helga Jóhannsdóttir 1970. Tóntegund: Hypólydísk.
Texti og nótur: © Smári Ólason 1998–2001.