Passíusálmar: 2. sálmur, 3. sálmur, 22. sálmur, 45. sálmur
Lagboðinn „Faðir vor, sem á himnum ert“ er sá sami og þýska lagið „Vater unser im Himmelreich“. Hann birtist fyrst með nótum í Hólabók 1619. Þessi lagboði á við um alls fjóra Passíusálma en í átta öðrum tilfellum á sami lagboðinn við um tvo Passíusálma. Þetta er líka eini lagboðinn sem hefur sex hendingar þar sem hver hending hefur átta atkvæði. Þessi lagboði hefur því nokkra sérstöðu.
Í Sálmabók 1977 er skráð eldri gerð þessa lagboða (rytmísk) við erindi úr þeim Passíusálmum sem þessi lagboði á við um, t.d. nr. 277. Í Sálmabók 1972 er gefinn upp lagboðinn „Faðir vor, sem á himnum ert“ en hann er í Sálmasöngsbók 1936 nr. 26a.

Við niðurskrift nótnanna var stuðst við söng Höllu Loftsdóttur (f. 1886) frá Kollabæ í Landeyjum. Upptökuna gerði Hallfreður Örn Eiríksson 1969. Lagið er mjög nærri uppruna sínum en þó mikið skreytt. Í bók sinni Íslenzk þjóðlög (s. 727) skráir Bjarni Þorsteinsson lag sem er nokkuð líkt þessari gerð. Tóntegund: Lydísk.
Texti og nótur: © Smári Ólason 1998–2001.