Passíusálmur: 18. sálmur
Þetta lag er frá þýska lagboðanum „Meine Seele erhebt den Herren“ frá 1525. Það er í öllum Gröllurum undir þessum lagboða en í 6. til 19. útgáfu Grallarans er það einnig prentað við Lofsöng Zacharíasar, „Blessaður að eilífu sé“. Í Hólabók 1589 er lagið prentað við Lofsöng Zacharíasar en sálmurinn „Sælir eru þeim sjálfur Guð“ er ekki í þeim. Í Hólabókum og Gröllurum er lagið í d-dórískri tóntegund. Í Grallara 1594 er lokatónn ranglega skráður e í stað d.
Í efnisyfirliti Sálmasöngsbókar 1936 er vísað á lagboðann „Sælir eru þeim sjálfur Guð“ nr. 183. Það er sama lag og í Gröllurunum en í útjafnaðri hrynmynd. Engin erindi úr 18. Passíusálmi eru í Sálmabók 1936.
Lagboðinn „Náttúran öll og eðli manns“ er gefinn upp við 35. Passíusálm. Það lag er í a-aeólískri tóntegund en upphaf þess lags og lagsins „Sælir eru þeim sjálfur Guð“ er mjög svipað. Sama lag var sungið við 18. sálm og 35. sálm en samkvæmt þeim gögnum sem ég hef skoðað voru það frekar laggerðir sem byggðu á lagboðanum „Náttúran öll“ en „Sælir eru“.
Í bókinni Íslenzk þjóðlög er 18. sálmur á s. 740 og 35. sálmur á s. 752. Bjarni skráir heiti lagboðanna rétt við sálmana en hann víxlar laggerðunum. Lagið við 18. sálm með lagboðanum „Sælir eru“ er byggt á laginu „Náttúran öll“, og lagið við 35. sálm með lagboðanum „Náttúran öll“ er byggt á laginu „Sælir eru“, en Bjarni segir í umfjöllun að þannig hafi Guðmundur Árnason sungið fyrir hann þetta lag. Ég hef skoðað frumgögn Bjarna þar sem hann skrifar niður lögin við 18. og 35. sálm. Í öllum tilfellum eru lögin sem hann skrifar niður frekar afbrigði af lagboðanum „Náttúran öll“ og lagið sem hann hripar niður eftir Guðmundi Árnasyni er greinalega afbrigði af þeim lagboða. Öll þau dæmi sem ég hef um söng við 18. og 35. sálm eru einnig frekar undir áhrifum af lagboðanum „Náttúran öll“. Ég tel að lag Bjarna Þorsteinssonar við 35. Passíusálm í bókinni Íslenzk þjóðlög hafi aldrei verið sungið á þann hátt sem hann skráir það og það sé í raun og veru þjóðleg útfærsla hans á lagboðanum „Sælir eru þeim sjálfur Guð“. Þetta lag er eitt best þekkta „þjóðlag“ sem til er og er nú á dögum oftast sungið við 9. erindi 35. Passíusálms, „Gefðu að móðurmálið mitt“.
Róbert A. Ottósson taldi að þetta lag væri tilkomið sem samsteypa úr báðum lagboðunum (sjá nánar umfjöllun Róberts í Tuttugu og tveim helgisöngvum 1967), en ég vil véfengja þá niðurstöðu. Laggerðin sem ég valdi við 18. Passíusálm er sú sama og þau systkinin Skarphéðinn og Valgerður sungu við 35. Passíusálm. Sjá nánar um þá laggerð við skýringar á lagboðanum „Náttúran öll og eðli manns“.

Við niðurskrift nótnanna var stuðst við söng Skarphéðins Gíslasonar (f. 1895) á Vagnstöðum í Suðursveit og systur hans Valgerðar Gísladóttur (f. 1898). Upptökuna gerði Hallfreður Örn Eiríksson 1967. Tóntegund: ??.
Texti og nótur: © Smári Ólason 1998–2001.