Passíusálmur: 23. sálmur
Þetta lag er komið af þýska lagboðanum „Hilf Gott, daß mir gelinge“. Sálmurinn er í Hólabók 1589 án nótna en með nótum í Hólabók 1619 og í öllum útgáfum Grallarans.
Í efnisskrá Sálmasöngsbókar 1936 er við 23. Passíusálm vísað á þennan lagboða nr. 143. Það lag líkist lagboðanum í Hólabókinni og Gröllurunum en er örlítið frábrugðið. Í Sálmabók 1972 er í sálmi nr. 137 ( 4., 6. og 9. erindi 23. Passíusálms) vísað á þennan lagboða. Í Sálmabók1997 er sama lag við þennan sálm og í Sálmasöngsbók 1936. Nótnamyndin er þó aðeins frábrugðin, þar sem taktstrik hafa verið numin á brott, en það auðveldar söng kveðskapar eins og Passíusálmarnir eru, sem ekki er með reglulegar áhersluskiptingar.
Laggerð þeirra Skarphéðins og Valgerðar svipar nokkuð til frumgerðar en er þó orðin töluvert fjarlæg henni.

Við niðurskrift nótnanna var stuðst við söng Skarphéðins Gíslasonar (f. 1895) á Vagnstöðum í Suðursveit og systur hans Valgerðar Gísladóttur (f. 1898). Upptökuna gerði Hallfreður Örn Eiríksson 1967. Tóntegund: Hypófrygísk með endatón á 5. skalatóni.
Texti og nótur: © Smári Ólason 1998–2001.