Passíusálmur: 19. sálmur
Þetta lag er komið af þýska lagboðanum „Warum betrübst du dich mein Herz“. Það er í Hólabókum 1589 og 1619 en kemur ekki inn í Grallara fyrr en í 6. útgáfu.
Í efnisskrá Sálmasöngsbókar 1936 er við 19. Passíusálm vísað á þennan lagboða nr. 128. Það lag er mjög líkt laginu í Hólabókunum en þó með vissum frávikum. Ekkert erindi er úr 19. Passíusálmi í Sálmabók 1972.
Laggerð Höllu Loftsdóttur er greinilega komin af lagboðanum en er orðin að sjálfstæðu lagi.

Við niðurskrift nótnanna var stuðst við söng Höllu Loftsdóttur (f. 1886) í Kollabæ í Fljótshlíð. Upptaka: Þórður Tómasson 1969. Tóntegund: Lydísk.
Texti og nótur: © Smári Ólason 1998–2001.