Passíusálmur: 38. sálmur
Þetta lag er komið af þýska lagboðanum „Erbarm dich mein, O Herre Gott“ frá 1524. Það lag er við sálminn „Jesús sem að oss elskaði“ í Hólabókum 1589 og 1619 en kemur ekki inn í Grallarann fyrr en í 6. útgáfu
Í efnisyfirliti í Sálmasöngsbók 1936 er vísað á lagboðann „Sál dufti klædd, ei sómir þér“ nr. 161, en það lag er eftir danska sálmaskáldið A. P. Berggreen frá 1844. Engin erindi eru úr 38. Passíusálmi í Sálmabók 1972.
Ekki er hægt að sjá nein líkindi með laggerð þeirra systkina Skarphéðins Gíslasonar og Valgerðar Gísladóttur við uppgefinn lagboða. Bjarni Þorsteinsson birtir tvær laggerðir sem líkjast nokkuð hvor annarri í bók sinni Íslenzk þjóðlög. Þær laggerðir eru heldur ekki neitt líkar uppgefnum lagboða við þennan Passíusálm.

Við niðurskrift nótnanna var stuðst við söng Skarphéðins Gíslasonar (f. 1895) á Vagnstöðum í Suðursveit og systur hans Valgerðar Gísladóttur (f. 1898). Upptökuna gerði Hallfreður Örn Eiríksson 1967. Tóntegund: Dúr.
Texti og nótur: © Smári Ólason 1998–2001.