Passíusálmur: 35. sálmur
Þetta lag er frá þýska lagboðanum „Durch Adams Fall ist ganz verderbt“. Það er skráð í öllum útgáfum Grallarans við sálminn „Náttúran öll og eðli manns“ en í Hólabók 1589 er þetta lag við sálminn „Guðs rétt og voldug verkin hans“. Í Hólabók 1619 er það eins og í Gröllurunum við sálminn „Náttúran öll og eðli manns“.
Í efnisyfirliti Sálmasöngsbókar 1936 er fyrir 35. Passíusálm vísað á lagboðann „Hásæti fyrir Herrans hér“ nr. 52, en það er lag eftir danska tónskáldið A. P. Berggreen frá miðri 19. öld. Það lag, sem er í fjórskiptum takti með upptakti, passar mjög illa við kveðskap Hallgríms, stuðlar og höfuðstafir og áherslur orða falla þráfaldlega á veika takthluta. Í Sálmabók 1972 er í sálmi nr. 532 (35. sálmur 9. vers) vísað til þessa lagboða en jafnframt er vísað til „með þessu lagi“ og þar er skráð laggerð Bjarna Þorsteinssonar úr bók hans Íslenzk þjóðlög (s. 752) við 35. Passíusálm. Það lag er komið af lagboðanum „Sælir eru þeim sjálfur Guð“ (sjá nánar í umfjöllun um þann lagboða). Í Viðbæti við sálmasöngsbók 1976 er við sálm nr. 532 prentuð tvísöngsútsetning Róberts A. Ottóssonar á þessu lagi og hún er einnig birt í Sálmabók 1997.
Þar sem allar þær sönggerðir sem ég hef undir höndum, bæði við 35. Passíusálm og við 18. Passíusálm eru komnar af lagboðanum „Náttúran öll og eðli manns“ þá er hér birt lag þeirra systkina Skarphéðins og Valgerðar eins og þau sungu það við þessa tvo sálma. Laggerð Bjarna Þorsteinssonar við 18. Passíusálm (s. 740) er mjög lík því lagi.

Við niðurskrift nótnanna var stuðst við söng Skarphéðins Gíslasonar (f. 1895) á Vagnstöðum í Suðursveit og systur hans Valgerðar Gísladóttur (f. 1898). Upptökuna gerði Hallfreður Örn Eiríksson 1967. Tóntegund: ??
Texti og nótur: © Smári Ólason 1998–2001.