Passíusálmur: 37. sálmur
Þetta lag er komið af þýska lagboðanum „Wo Gott der Herr nicht bei uns hölt“. Það er ekki í Gröllurum en í Hólabókum 1589 og 1619 við sálminn „Ef Guð er oss ei sjálfur hjá“.
Í efnisskrá Sálmasöngsbókar 1936 er við 37. Passíusálm vísað á nr. 57 sem er lagboðinn „Heimili vort og húsin með“. Það lag er upprunalega veraldlegt lag frá 15. öld en birtist sem andlegt lag 1529. Það er þekkt undir mörgum lagboðum, þar á meðal „Es ist gewisslich an der Zeit“. ÍSálmabók 1972 er í sálmi nr. 386 (37. Passíusálmur erindi 10, 12 og 14) vísað á lagboðann „Hver, sem að reisir hæga bygð“ sem er nr. 77 í Sálmasöngsbók 1936. Það lag er merkt þar sem „Íslenzkt lag“, en uppruni þess er óviss. Það birtist fyrst á prenti í handritinu Hymnodia Sacraárið 1742, en Pétur Guðjónsson breytti því í uppskrift sinni fyrir Weyse handritið 1840. Í Sálmabók 1997 er við sálm nr. 386 prentað lagið „Hver, sem að reisir hæga bygð“ skv. nr. 77 í Sálmasöngsbók 1936, eins og tilvísun Sálmabókar 1936 segir til um.
Laggerð Sólrúnar Helgu Guðjónsdóttur er greinilega komin af lagboðanum „Hver, sem að reisir hæga bygð“ og mér virðist að að laggerðir sem byggðar eru á þeim lagboða hafi yfirleitt verið sungnar við Passíusálma nr. 34 og 37, en ég hef ekki undir höndum nein söngdæmi sem líkjast upprunalegum lagboða þessara sálma. Laggerð Bjarna Þorsteinssonar í bókinni Íslenzk þjóðlög við 37. Passíusálm (s. 754-55) í frygískri tóntegund er mjög sérkennileg og ég get ekki séð hvaða frumgerð af lagi hún er skyld.

Við niðurskrift nótnanna var stuðst við sama lag og við 34. Passíusálm, söng Sólrúnar Helgu Guðjónsdóttur (f. 1899). Upptökuna gerði Helga Jóhannsdóttir 1970. Tóntegund: Lydísk.
Texti og nótur: © Smári Ólason 1998–2001.