Passíusálmur: 4. sálmur
Þessi sálmur er án nótna í öllum eldri sálmabókum og við hann gefinn upp lagboðinn: „Drottinn á þér er öll mín von“. Hann er prentaður með þeim nótum í öllum Gröllurum frá og með 2. útgáfu. Uppruni hans er latneskur hymni, t.d. við textann „Deus creator omnium“.
Í Sálmasöngsbók 1936 er í Passíusálmaskrá vísað á lagboða nr. 98a: „Jesú, þín minning mjög sæt er“. Í Sálmabók 1972 er í sálmi nr. 325 vísað í lagboða nr. 197 í Sálmasöngsbók: „Kom, skapari, heilagi andi“. Í Sálmabók 1997 er við erindi úr þessum Passíusálmi tekið upp lag sem fyrst kom fram hjá Jónasi Jónssyni hér á landi við þennan Passíusálm í bók hans Hallgrímur Pétursson, Passíusálmarnir með 4 röddum fyrir orgel og harmóníum (Reykjavík 1906-07). Þetta er þýskt lag með lagboðanum „Herr Jesu Christ, meins Lebens Licht“, sem fyrst birtist í Leipzig 1625. Jónas segir að lag þetta geti „vel átt við“.
Ég hef ekki fundið neitt afbrigði af lagi sem ég gæti rakið til þess lagboða sem Hallgrímur gefur upp eða þeirra lagboða sem að öðru leyti er vísað til. Algengt var að syngja sama lag við þennan sálm og við 27. og 40. sálm, en það er afbrigði af lagboðanum „Skapari stjarna, Herra hreinn“. Lag í bók Bjarna Þorsteinssonar, Íslenzk þjóðlög (s. 728), líkist því töluvert en Bjarni telur samt að það sé annað lag.

Við niðurskrift nótnanna var stuðst við söng Steinunnar Guðmundsdóttur (f. 1888). Upptökuna gerði Hallfreður Örn Eiríksson 1964. Tóntegund: Dúr.
Texti og nótur: © Smári Ólason 1998–2001.