Passíusálmar: 6. sálmur, 39. sálmur
Í fororði fyrir þessum sálmi stendur í Hólabók 1589: „„Ég vil eina jómfrú lofa“ – Ein gömul vísa / snúin og umbreytt / Jesú Guðs syni til lofs“.“ Lagið er tekið upp eftir dönsku sálmabókinni. Nokkrar kenningar eru um uppruna þess: Hugsanlega er það samsteypa úr tveimur lögum, en danski tónvísindamaðurinn Glahn kemst að þeirri niðurstöðu að það sé breytileg gerð af dönskum sálmi sem á rætur að rekja til þýsks alþýðulags.
Pétur Guðjónsson fellir þetta lag burt úr bók sinni 1861 þar sem hann telur það ónothæft og tekur í staðinn lag eftir tónskáldið Zinck. Í athugasemd segir hann: „Þetta lag er eptir professor Zinck, og má gjöra ráð fyrir að hins gamla ekki verði saknað, þar sem þetta kemur í staðinn“ (s. 147). Í Sálmasöngsbók 1936 er lag Zincks undir þessum lagboða nr.15a en nr.15b er nýtt lag á Íslandi sem tekið er úr Souter Liederkreis. Í Sálmabók 1936 koma ekki fyrir erindi úr 6. Passíusálmi þó svo að 12. og 13. erindi hafi verið mikið sungin og ættu fullt erindi þar inn, en tvö erindi eru úr 39. Passíusálmi nr. 328 þar sem vísað er til lagboðans í Sálmasöngsbókinni. Í Sálmabók 1997 er þessi sálmur skráður undir rytmískri gerð af laginu sem í útjafnaðri gerð er nr. 80a í Sálmasöngsbók 1936 undir lagboðanum „Hversu mig leysast langar“.
Ég hef undir höndum allmargar mjög góðar laggerðir sem byggjast á gamla lagboðanum og það má með sanni segja að það sé töluverð eftirsjá að honum. Lag í bók Bjarna Þorsteinssonar, Íslenzk þjóðlög (s. 730), er mjög líkt því söngdæmi sem ég valdi

Við niðurskrift nótnanna var stuðst við söng Sigríðar Árnadóttur (f. 1867). Upptöku gerði Þórður Tómasson 1955 eða 1956. Tóntegund. Lydísk.
Texti og nótur: © Smári Ólason 1998–2001.