Passíusálmur: 7. sálmur
Þessi lagboði er frá þýska laginu „Von Gott will ich nicht lassen“. Hann er í Hólabók 1589 skráður í g-dórískri tóntegund með G-lykli á miðstreng og með formerkið b á 4. línu. Hann er ekki í 1. útgáfu Grallarans en hann er í 2. útgáfu 1607. Þar er c-lykill kominn á 4. línu og formerkið b komið á 3. bil, en laglínan á sama stað og í Hólabók 1589. Þannig er lagið ranglega skrifað niður í frygískri tóntegund í 2. útgáfu Grallarans, í Hólabók 1619 og öllum Gröllurum eftir það. Um miðja 18. öld breyttist nafnið á þessum lagboða og hét hann eftir það „Guðs vors nú gæsku prísum“.
Í Sálmasöngsbók 1936 er í efnisskrá fyrir 7. Passíusálm vísað á þann lagboða nr. 50. Sú laggerð er mjög lík þeirri sem er í Hólabók 1589 undir gamla lagboðanum en þó ekki alveg eins. Í Sálmabók 1972 er í sálmi nr. 296 með versum úr 7. Passíusálmi (2. og 3. vers) vísað til þessa lagboða. Í Sálmabók 1997 er lagið við þennan sálm samkvæmt lagboðanum „Konung Davíð sem kenndi“ úr Hólabók 1589, en það er lagboðinn við Passíusálma nr. 25 og 33 (sjá síðar).
Svo virðist sem 7. Passíusálmur hafi oftast verið sunginn með sama lagi og 25. og 33. Passíusálmur, sem hafa lagboðann „Konung Davíð sem kenndi“, en hann er einnig í g-dórískri tóntegund. Þessir lagboðar eru nokkuð áþekkir en hafa þó báðir mjög sterk sérkenni. Ég tel að þær laggerðir sem ég hef dæmi um og sungnar eru við þessa þrjá sálma séu frekar afbrigði af lagboðanum „Gæsku Guðs vér prísum“. Sú laggerð sem þau systkinin Skarphéðinn og Valgerður syngja er það frábrugðin upprunalegum lagboða að hún orðin að sjálfstæðu lagi. Laggerð Bjarna Þorsteinssonar í Íslenzk þjóðlög (s. 731) líkist þessu lagi töluvert en er þó nær upprunalegum lagboða.
Við niðurskrift nótnanna var stuðst við söng Skarphéðins Gíslasonar (f. 1895) á Vagnstöðum í Suðursveit og systur hans Valgerðar Gísladóttur (f. 1898). Upptökuna gerði Hallfreður Örn Eiríksson 1967. Tóntegund: Lydísk.
Texti og nótur: © Smári Ólason 1998–2001.