Passíusálmur: 5. sálmur
Þessi lagboði er skráður í d-dórískri tóntegund í Hólabók 1589 en nokkrar leiðréttingar eru á 2. og 3. hendingu hans í Hólabók 1619. Hann kemur ekki fyrir í Grallara fyrr en í 11. útgáfu.
Í Sálmasöngsbók 1936 er við 5. Passíusálm vísað í þennan lagboða við nr. 55, svo og í Sálmabók 1972 við nr. 474. Þar er lagið töluvert frábrugðið því sem birt er í Hólabók 1619. Í Sálmabók 1997 er lagið skrifað niður næstum því eins og það er í Sálmasöngsbókinni.
Ekki er hægt að sjá í fljótu bragði að þau lög sem sungin voru við þennan sálm séu afbrigði af þeim lögum sem eru í Hólabók eða í Sálmasöngsbók. Mér hefur ekki tekist að staðfæra þann lagboða sem þessi laggerð byggir á. Lag í bók Bjarna Þorsteinssonar, Íslenzk þjóðlög (s. 729), líkist töluvert því söngdæmi sem ég hef valið.

Við niðurskrift nótnanna var stuðst við söng Guðríðar Jónsdóttur (f. 1886). Upptökur gerðu Þórður Tómasson 1965 og Helga Jóhannsdóttir 1970. Tóntegund: Lydísk.
Texti og nótur: © Smári Ólason 1998–2001.