Passíusálmur: 44. sálmur
Þetta lag má telja alþjóðlegt þjóðlag en elsta heimild um það er í handriti frá 1421. Það er undir nafninu „In oostenryck“ í hollensku bókinni Souter lidekens, þýski lagboðinn er „Ach Seele willst du ewgem Leid“. Þetta lag er með sálminum „Herra Guð í himnaríki“ í öllum Gröllurum og íHólabók 1619 en sálmurinn er án nótna í Hólabók 1589.
Í efnisyfirliti í Sálmasöngsbók 1936 er vísað á þennan lagboða nr. 61. Nr. 61a er viðkomandi lag, en hér er það talið vera danskt lag. Það var fyrst þekkt í Danmörku 1528 sem „Gud Fader udi Himmerig“ en það birtist fyrst á prenti 1539. Nr. 61b er lag eftir Þórarin Guðmundsson. ÍSálmabók 1972 er í sálmi nr. 376 (44. Passíusálmur erindi 10, 11, 12, 13 og 14), og sálmi nr. 339 (44. Passíusálmur erindi 17 og 18) og sálmi nr. 373 (44. Passíusálmur erindi 19, 20, 21 og 22) vísað á lagboðann „Herra Guð í himnaríki“. Í Sálmabók 1997 er við sálm nr. 376 prentaður lagboðinn „Þú guð sem stýrir stjarnaher“. Það lag er komið af þýska lagboðanum „Ich weiß mir ein ewiges Himmelsreich“ frá 1643. Það kom nýtt inn á Íslandi sem „danskt þjóðlag“ í Viðbæti 1891. Það er í Sálmasöngsbók 1936 nr. 213. Við sálm nr. 339 er prentað lagið úrSálmasöngsbók 1936 eins og tilvitnunin segir til um.
Laggerð þeirra Skarphéðins Gíslasonar og Valgerðar Gísladóttur er greinilega komin af lagboðanum „Herra Guð í himnaríki“ en það hefur breyst úr dórískri tóntegund í lydíska tóntegund og er töluvert skreytt. Laggerð Bjarna Þorsteinssonar í bókinni Íslenzk þjóðlög er allt önnur, en ég hef ekki getað séð af hvaða lagboða hún er komin.

Við niðurskrift nótnanna var stuðst við söng Skarphéðins Gíslasonar (f. 1895) á Vagnstöðum í Suðursveit og systur hans Valgerðar Gísladóttur (f. 1898). Upptökuna gerði Hallfreður Örn Eiríksson 1967. Tóntegund: Lydísk.
Texti og nótur: © Smári Ólason 1998–2001.