Passíusálmur: 36. sálmur
Tilvitnun Hallgríms er „Hvað mundi vera hjartað mitt“, en það á óefað við um lagboðann sem annars heitir „Hvar mundi vera hjartað mitt“. Uppruni þessa lags er mjög óviss, hugsanlega er það þýskt lag frá byrjun 17. aldar með íslenskum breytingum. Það kemur fyrst fyrir á prenti á Íslandi í handritinu Hymnódía Sacra frá 1742 (s. 382).
Í efnisskrá Sálmasöngsbókar 1936 er við 34. Passíusálm vísað á þennan lagboða nr. 73. Sú laggerð er lík laginu í Hymnódía Sacra en þó meir með yfirbragði tvíssöngslaggerðar sem fram kom hjá Bjarna Þorsteinssyni 1906-09. Róbert A. Ottósson birti tvísöngsútsetningu á því lagi í bók sinn 22 Helgisöngvar árið 1967 við sálminn „Ó maður, hvar er hlífðarskjól“ eftir Matthías Jochumsson. Sú laggerð við þann sálm er í Sálmasöngsbók Viðbæti 1976 nr. 268. Engin erindi eru úr 36. Passíusálmi í Sálmabók 1972.
Laggerð Sólrúnar Helgu Guðjónsdóttur er mjög skreytt gerð sem rekja má til lagsins í Hymnódía Sacra.Bjarni Þorsteinsson birtir tvö lög við 34. Passíusálm í bók sinn Íslenzk þjóðlög. Fyrri laggerðinni svipar nokkuð til lagsins í Hymnódía Sacra nema 1./3. hending er verulega frábrugðin og er hún nokkuð skreytt. Hin laggerðin er eins og áður segir slétt tvísöngslaggerð sem svipar mjög til lagsins í Hymnódía Sacra.

Við niðurskrift nótnanna var stuðst við söng Sólrúnar Helgu Guðjónsdóttur (f. 1899). Upptökuna gerði Helga Jóhannsdóttir 1970. Tóntegund: Lydísk.
Texti og nótur: © Smári Ólason 1998–2001.