Passíusálmar: 25. sálmur, 33. sálmur
Þetta lag er komið af hollenska lagboðanum „Ick had enn gehstadich minneken“, en það er Saltarasálmur úr Souterliedkens frá 1540. Þessi sálmur er í báðum Hólabókum, 1589 og 1619 og í öllum útgáfum Grallarans. Þetta lag hefur ekki verið sungið við vers úr 25. eða 33. sálmi eins og sjá má hér að neðan, en það er prentað í útjafnaðri gerð í Sálmabók 1997 við sálm nr. 313, en það eru vers úr 16. Passíusálmi. Lagboði við þann Passíusálm hjá Hallgrími Péturssyni er „Af hjarta, hug og munni“, en það er einn af þeim lagboðum sem ekki hefur tekist að finna hvaðan eru upprunnir (sjá nánar í umfjöllun um þann sálm).
Í efnisskrá Sálmasöngsbókar 1936 er við 25. og 33. Passíusálm vísað á lagboðann „Konung Davíð, sem kendi“ nr. 109. Það er allt annað lag, mjög breytt gerð af þýska lagboðanum „Aus meinem Herzen Grunde“ frá 1598, en það finnst bæði í Hólabókunum og Gröllurunum. Í efnisskrá Sálmasöngsbókarinnar 1936 er einnig vísað á þennan lagboða í 16. sálmi. Í Sálmabók 1972 er enginn sálmur með versum úr 33. sálmi en tveir sálmar er með versum úr 25. sálmi. Í báðum sálmunum, nr. 56 (14. vers) og nr. 272 (9., 10. og 11. vers) er vísað í lagboðann „Konung Davíð sem kenndi“, en sú tilvísun á að sjálfsögðu við um Sálmasöngsbók 1936. Í Sálmabók 1997 er lagið úr Sálmasöngsbók 1936 prentað við báða þessa sálma, en það er sérkennilegt að lagið við nr. 56 er í Es-dúr en við nr. 272 er það í F-dúr.
Þær laggerðir sem ég hef undir höndum við Passíusálma nr. 25 og 33 eru allar afbrigði af lagboðanum „Gæsku Guðs vér prísum“ (sjá umfjöllun um 7. Passíusálm). Samkvæmt íslenskri sönghefð virðist því sama lagið hafa verið sungið við 7., 25. og 33. Passíusálm og að þær laggerðir hafi allar verið afbrigði af lagboðanum „Gæsku Guðs vér prísum“. Sú laggerð sem ég sýni við þessa Passíusálma er sungin af þeim systkinum Skarphéðni Gíslasyni og Valgerði Gísladóttur. Í sumum tilfellum söng fólk einnig sama lagið við 16. Passíusálm, samanber aðra laggerð af þessu sama lagi sem ég sýni við 16. sálm, sungna af Sólrúnu Helgu Guðjónsdóttur, en einnig virðist sem laggerð sem komin er af lagboðanum „Konung Davíð sem kenndi“ hafi verið sungin við þann sálm. Í bókinni Íslenzk þjóðlög (s. 745 og 751) gefur Bjarni Þorsteinsson upp að sama lag sé sungið við Passíusálma nr. 25 og 33 og við 7. Passíusálm en við 16. Passíusálm er hann með laggerð sem er greinilega komin af lagboðanum „Konung Davíð sem kenndi“.

Við niðurskrift nótnanna var stuðst við söng Skarphéðins Gíslasonar (f. 1895) á Vagnstöðum í Suðursveit og systur hans Valgerðar Gísladóttur (f. 1898). Upptökuna gerði Hallfreður Örn Eiríksson 1967. Tóntegund: Hypólydísk.
Texti og nótur: © Smári Ólason 1998–2001.