Passíusálmur: 49. sálmur
Lagboðinn „Nú látum oss líkamann grafa“ sem er lagboði 32. Passíusálms, er eina líksöngslagið í Hólabókum og Gröllurum með þessum sama bragarhætti (4: 8 8 8 8 ||).
Í efnisyfirliti í Sálmasöngsbók 1936 er fyrir 49. Passíusálm vísað á lagboðann „Nú látum oss líkamann grafa“ nr. 136. Í Sálmabók 1972 er í sálmi nr. 278 (49. Passíusálmur, erindi 19, 21 og 22) vísað í lagboðann „Nú látum oss líkamann grafa“. Í Sálmabók 1997 er við sálm nr. 278 prentað lagið nr. 136 úr Sálmasöngsbók 1936 með þeim breytingum að fyrst nóta hverrar hendingar er lengd til þess að skapa áhrif rytmískrar laggerðar. Þetta lag hefur aldrei verið til hér á landi með þessum hætti og slíkur söngmáti er frekar leiðinlegur.
Laggerð Sigríðar Árnadóttur er ekki skyld lagboðanum „Nú látum oss líkamann grafa“. Þetta er mjög sérstakt lag í lókritískri tóntegund, þ.e. sammarka dúrtóntegund á 7. skalatóni. Laggerð Bjarna Þorsteinssonar í bókinni Íslenzk þjóðlög (s. 762) er mjög svipuð laggerð Sigríðar og greinilega af sama lagboða, en tóntegund lagsins er frygísk.

Við niðurskrift nótnanna var stuðst við söng Sigríðar Árnadóttur (f. 1867). Upptökuna gerði Þórður Tómasson 1955 eða 1956. Tóntegund: Lókritísk.
Texti og nótur: © Smári Ólason 1998–2001.