Passíusálmur: 32. sálmur
Þetta lag er komið af þýska lagboðanum „Nun laßt uns den Leib begraben“ sem talið er vera frá 1542/44. Það er með þessum sálmtexta í 1. útgáfu Grallarans 1594 en er ekki í 2.-5. útgáfu Grallarans. Það er með sama hætti í Hólabók 1619 en sálmurinn er án nótna í Hólabók 1589. Í 4. útgáfu Passíusálma Hallgrím Péturssonar sem gefin var út í Skálholti 1690 er prentað lag við 32. Passíusálm. Tilvísun lagsins er: „Með himnalag / eður þeßum nótum“. Þetta lag er lagboðinn „Nú kom heiðinna hjálparráð“. Hann er í báðum Hólabókum og í öllum Gröllurum nema í 1. útgáfu. Það lag er komið af latneskum hymna, „Da pacem Domine“, þýski lagboðinn er „Verleih uns Frieden gnödelich“ og er frá 1529.
Í efnisskrá Sálmasöngsbókar 1936 er vísað í lagboðann „Nú kom heiðinna hjálparráð“ nr. 135. Það lag er uppskrift Sigurðar Þórðarsonar á íslensku sálmalagi, þjóðlagi sem greinilega er laggerð af lagboðanum „Nú kom heiðinna hjálparráð“ sem eins og áður sagði var prentaður við þennan sálm í 4. útgáfunni. Frumgerð þess lags er í Sálmasöngsbók Viðbæti 1976 við sálm nr. 67, „Nú kemur heimsins hjálparráð“. Í Sálmabók 1972 er í sálmi nr. 135 (32. Passíusálmur erindi 2, 4, 5, 13, 19, 21 og 22) vísað í upprunalegan lagboða Hallgríms, „Nú látum oss líkama grafa“ nr. 136. Það lag er mjög líkt lagboðanum í Hólabókum og Gröllurum. Í Sálmabók 1997 er það lag við sálm nr. 135.
Sigmar Torfason syngur lag sitt nákvæmlega eins og laggerð Sigurðar Þórðarsonar er í Sálmasöngsbók 1936 nr. 135 við lagboðann „Nú kom heiðinna hjálparráð“ nema hann bætir við einni skrautnótu. Bjarni Þorsteinsson birtir tvær laggerðir við 32. Passíusálm í bók sinni Íslenzk þjóðlög(s. 750-51). Þær laggerðir eru báðar svipaðar laggerðum þeirra Sigurðar og Sigmars.

Við niðurskrift nótnanna var stuðst við söng Sigmars Torfasonar (f. 1918). Upptökuna gerði Smári Ólason 1992. Tóntegund: Dúr / lydísk.
Texti og nótur: © Smári Ólason 1998–2001.