Passíusálmur: 20. sálmur
Þetta lag er komið af þýska lagboðanum „Ein feste Burg ist unser Gott“. Það er talið vera eftir Martein Lúther frá 1529, en þessi sálmur og þetta lag voru meðal hornsteina siðbreytingarinnar og áttu mikinn þátt í því að breiða hana út. Sálmurinn er í Hólabók 1589 án nótna en með nótum íHólabók 1619 og í öllum útgáfum Grallarans.
Í efnisskrá Sálmasöngsbókar 1936 er við 20. Passíusálm vísað á þennan lagboða nr. 154. Það lag er mjög líkt lagboðanum í Hólabókinni og Gröllurunum en þó með vissum frávikum. Ekkert erindi er úr 20. Passíusálmi í Sálmabók 1972.
Sú laggerð sem ég sýni er eina dæmið sem ég hef undir höndum við 20. Passíusálm, en í upptöku þeirri sem Hallfreður Örn Eiríksson gerði með þeim systkinum Valgerði Gísladóttur og Skarphéðni Gíslasyni á öllum Passíusálmunum árið 1967 sungu þau Þorsteinn Guðmundsson og Valgerður saman þetta lag, en ekki Skarphéðinn og Valgerður. Laggerð Bjarna Þorsteinssonar í bókinni Íslenzk þjóðlög (s. 742) er mjög svipuð að uppbyggingu en nokkuð frábrugðin í útfærslu.

Við niðurskrift nótnanna var stuðst við söng Þorsteins Guðmundssonar (f. 1898) frá Reynivöllum, A-Skaftafellssýslu. Upptaka: Hallfreður Örn Eiríksson 1964. Tóntegund: Mixólýdísk.
Texti og nótur: © Smári Ólason 1998–2001.