Passíusálmar: 30. sálmur, 48. sálmur
Þetta lag er upprunalega latneskur hymni „Pangue Lingua“ frá 1525, en þýski lagboðinn er „Mein Zung erkling und frölich sing“. Það er í báðum Hólabókum 1589 og 1619 og í öllum útgáfum Grallarans nema 1. útgáfu.
Í efnisskrá Sálmasöngsbókar 1936 er við 30. og 48. Passíusálm vísað á þennan lagboða nr. 189. Það er allt annað lag, sem upprunalega finnst í handriti frá 1768 með heitinu „Tantum ergo sacramentum“, en það er vers úr hymnanum „Pangue Lingua“. Í Sálmabók 1972 er í sálmi nr. 396 (30. Passíusálmur erindi 10 og 11), sálmi nr. 443 (30. Passíusálmur erindi 14) og í sálmi nr. 326 (48. Passíusálmur erindi 15, 16, 17, 18 og 19) vísað á þennan lagboða. Í Sálmabók 1997 er prentað lagið nr. 189 úr Sálmasöngsbók 1936 við sálma nr. 396, 443 og 326.
Laggerð Tómasar Þórðarsonar er greinilega komin af frumgerð lagboðans en er all breytt. Laggerð Bjarna Þorsteinssonar í bókinni Íslenzk þjóðlög frá 1906-09 við 30. Passíusálm (s. 749) er í þrískiptum takti, löng-stutt. Lagið líkist nokkuð frumgerð lagsins. Bjarni gefur upp annað lag við 48. Passíusálm (s. 761) og vísar í lagboðann „Upp á fjallið Jesús vendi“, og hann segir: „.. optast mun 30. sálmurinn og þessi sálmur hafa verið sungnir með þessu lagi, en ekki með laginu „Tunga mín af hjarta hljóði#147;.#147;

Við niðurskrift nótnanna var stuðst við söng Tómasar Þórðarsonar (f. 1886). Upptökuna gerði Þórður Tómasson 1969. Tóntegund: Moll.
Texti og nótur: © Smári Ólason 1998–2001.